Prófíll

  • Nafn:
    Karen Guðmundsdóttir
  • Staður:
    Keflavík
  • Atvinna:
    Hangs
  • Hjúskaparstaða:
    Á Lausu
  • Um mig:
    gnerak er 17 ára kvendi frá Keflavík en býr núna í Mountain Home, Idaho í Bandaríkjunum og er svo sannarlega að meika það! Semsagt að hangsa, þroskast og kynnast fjölskylduni. Mun búa þar í hálft ár og flyt síðan aftur á klakann til að taka stúdentinn á listabraut í Iðnskóla Hafnarfjarðar. Svo veit ég ekki hvað mun gerast næst! Tónlist, vinir, hjólabretti, fjölskyldan og að ferðast eru mín helstu áhugamál! Svo finnst mér alltaf gaman að kynnast nýju fólki og læra eithvað nýtt.
  • Annað:
    Það kvetur mig áfram að vita að fólk les bloggið mitt, endilega skiljið eftir nokkur orð ef þið hafið lesið eithverja færslu, takk fyrir =)

    www.myspace.com/gnerak
    kareng-90@hotmail.com

Auglýsing

Könnun

Hvað Gerðiru Við Peningana Sem Frúin Í Hamborg Gaf Þér?

Klukkan

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Leit

Gnerak Star Trailer Trash!

10. júní 2008 klukkan 19:58

 

Langt síðan ég bloggaði seinast, frekar mikið sem ég get bloggað um núna! Ef þú nennir ekki að lesa langt blogg þá er allt það besta að frétta af mér, ég er heilbrigð og elska lífið og nú getur þú farið að chilla á myspace eða eithvað. 

En fyrir þau sem eru brjálað spennt yfir fréttum frá mér, til dæmis eins og mamma og Kittý systir. Farið inní eldhús og grípið vatnsglas og ávexti og komið svo til baka því þetta blogg verður langt. 

 

Karen Guðmundsdóttir, ég. Er orðin 18 ára, já þið lásuð rétt litla stelpan er orðin sjálfráða! Mér finnst ég ekkert vera meira þroskaðari heldur en ég var þegar ég var 17 ára. Ég er enþá sama fíflið. Sem er bara gott, því mig langar ekkert að eldast mikið meira. Margir segja að 18 til 21 ára sé besti aldurinn og ég get nú vel trúað því. Seinustu árin til þess að láta einsog fífl og svo tekur alvaran við. Er þetta ekki rétt hjá mér? 

 

Annars var afmælisdagurinn minn bara rólegur og fínn, var ein heima þangað til að Magga var búin að vinna og krakkarnir búnir í skólanum.  Svo fórum við um kvöldið í Boise að borða á Outback Stake House. Ég fékk mér cesar sallat, New York steik og bakaða kartöflu. Nammi namm, þetta var svo gott að ég borðaði allt sem var á disknum. Það gerist ekki oft! ónei.. Svo fékk ég afmælis ís í boði hússins. Jei.. Svo var bara farið heim. 

 

Svo dagana eftir afmælið þá hjálpaði ég Möggu í garðinum og helgin fór í hörku vinnu. Og ég er ekki frá því að ég fann fyrir hverjum einasta vöðva í líkamanum mínum daginn eftir. 

Klukkan 12 eitt kvöldið þegar ég og Magga vorum að leggja loka hönd á eitt af verkum okkar útí garði heyrum við rosa trukka hljóð. Ég hugsaði með mér hver í andsk. væri að keyra inní einstefnugötu á svona háværum trukk. Og svo stoppar hann fyrir framan húsið okkar. Við sáum ekki neitt því það var dimmt úti og ljósin voru svo sterk. Svo var slökt á trukknum og stigu ekki Telma og Dave útúr honum. Ég öskraði af gleði, óvart! Það skrækti í mér. Ég var einmitt að tala um það við möggu hvað mig hlakkaði til að hitta þau eftir nokkra daga. Þetta kom svo æðislega á óvart.  En Dave þurfti að fara eftir 3 daga útaf vinnuni, það var frekar leiðinlegt! Hann gat ekki einusinni verið í afmælis og útskrifar partýinu okkar Karitasar. Og svo mætti Audrey og hún gisti bara í eina nótt og fór svo í road trip með vinkonu sinni. 

En við fengum þó að hitta þau í smá tíma, það er þó betra en ekkert! 

 

26.Maí, afmælisdagurinn þeirra Möggu og Karitasar var ágætur. Við ætluðum í Boise í keilu, lasertag eða eitthvað þannig og fara svo út að borða á góðum matsölustað. En Karitas fékk ekki frí í vinnuni þannig restin af okkur sátum bara heima og gerðum voða lítið. Magga og Telma elduðu rosa gott kjöt og maturinn var bara æði. Eftir matinn var smá pakka tími! Ég opnaði pakkann frá Telmu, Dave og Möggu. VÁ, bjóst enganvegin við þessari gjöf. Enda sagði ég við þau að allt sem mig langaði í væri svo dýrt að þau ættu ekki að kaupa það. Þau spurðu sammt hvað það væri og ég svaraði "iPod Video". Og ég fékk hann!!! Eða reyndar iPod Classic sem er nýja gerðin af Video.. og þar á meðal voru þetta 80GB! Og svo fékk ég líka digital lykklakippu sem er hægt að setja myndir á. Ég var ekkert smá glöð með þetta. 

 

Svo var partýið 31. Mai, það var rosa fínt! Fátt af fólki en sammt góðmennt. Við grilluðum hamborgara og pulsur frekar auðvelt og gott! Svo gerði Telma geðveika kjúklingasúbu. Namm! Svo seinna um kvöldið opnuðum við fleirri pakka. Ég fékk kanínubangsa frá vinkonu Möggu, blóm frá dætrum hennar og svo frá Högna og Audrey fékk ég græjur til að setja iPodinn minn í! Vá.. Þau kunna sko að velja góðar gjafir! iPod Classic og græjur fyrir hann, ég er ekkert smá þakklát og ánægð! 

 

Svo var helgin á enda og ég ákvað að fara með Telmu heim. Fannst það frekar góð hugmynd því að þá þyrfti ég ekki að kaupa flugmiða til þeirra seinna. Sem mun ábyggilega kosta mikið. Þannig ég keyrði með henni og er búin að vera hér í viku. 

 

Já, ég er trailer trash núna! Fyrir þá sem vissu ekki þá eiga Telma og Dave heima í Trailer í Colorado.  Mér finnst þetta bara fínt og kósý!  Verð nú að segja að ég sé frekar High Class Trailer Trash. Flat sjónvarp, heima bíó, xBox, net tenging og fleirra hérna. Frekar nice! 

En það er búið að vera rosa gaman þessa viku, við erum búin að fara held ég 3-4 sinnum í bíó! Nokkuð oft út að borða og svo fórum við í keilu í fyrradag. 

 

Vá, það er svo fallegt hérna! Bærinn er í svona holu og fjöll alstaðar í kring, við fórum í smá bíltúr um daginn og keyrðum uppí fjall! Vá þetta var svo flott. Svo fer ég bráðum með Telmu og Dave í vinnuna. Og þau vinna einmitt uppí fjalli, úff hvað mig hlakkar til! Verð að muna eftir myndavélinni. 

 

Við förum sennilega í ferðalag næstu helgi, er farin að hlakka til! Við erum ekki alveg búin að ákveða hvert við ætlum að fara en það koma nokkrir staðir til greina. Vona að það verði vatn þarna hjá, það var svo æðislegt seinast þegar við fórum í útilegu hér í USA! 

 

Já, svo er bara lítið annað að frétta af mér og mínum hérna úti! 

Ég er að pælí að fá mér tattoo eftir næstu helgi, þótt mamma og pabbi vilja ekki leyfa mér það. Þeim finnst þetta subbulegt, úff þetta gamla fólk veit ekkert í sinn haus. Hahh, djók! Þau eru best.

En ég er orðin sjálfráða og ég bý ekki einu sinni  með þeim. Svo held ég bara að þau munu elska mig meira eftir að ég óhlýðnist þeim smá. Ég meina, Brian litli elskar mig mikið meira eftir að hann fór í reiðiskast útí mig um daginn. Þannig ég held að það verði allt í lagi eftir að ég fái mér tattoo.. 

Ef þau verða mikið fúl útí mig þá er mér sama, þá ætla ég að vera fúl útí þau því ég er ekki búin að fá afmælisgjöf frá þeim!!!! (m&p, ekki voga ykkur að fara að væla um að ég hafi ekki gefið ykkur jólagjöf. Það koma jól eftir þessi jól. Ég verð ekki 18 ára aftur, I wish though). Hahah..  

 

Vá, bara tvær vikur þangað til að mamma og pabbi koma hingað til Colorado! Ég gæti ælt af spenningi, hlakka svo til að sjá þau. Þau ætla að keyra frá New York sem er alveg hinumegin í Ameríkuni. Ég öfunda þau ekkert smá. Road trip í ameríku er eitt af mörgu sem er á "to do" listanum mínum.

 

Annars hef ég ekkert annað að segja, held bara að þetta sé nógu gott í bili. 

Ég vil þakka þér fyrir að hafa þolinmæði og áhuga á því að lesa bloggið mitt! Endilega láttu mig vita ef þú last þetta. Sama hver þú ert þótt ég þekki þig eða ekki. I don´t care, langar bara að vita hverjir eru svona awesome að lesa þetta rugl. 

 

Ást & friður. 

-gnerak star

 


Karen Guðmundsdóttir
Almennt | 8 athugasemdir

obbosí!

20. maí 2008 klukkan 22:02
Æji, ég er búin að vera ferleg í því að blogga. Ég bara skammast mín!!
Annars er bara allt það besta að frétta héðan, hef svosem voða lítið að segja. Ég keypti mér tölvu um daginn og ég er ekkert smá ánægð með hana, hún á eftir að nýtast mér rosa vel næstu árin! 
Ég er að vinna í því að setja myndirnar sem ég hef tekið inná netið svo þið getið séð þær. 
Það tekur alveg endalausann tíma að setja þær inn, en það tekst á endanum. Vona ég!
Magga fór á smá cruse um helgina, fór snemma á föstudeginum og kom heim seinni part sunnudags. Þannig við krakkarnir vorum ein heima. Allt fór vel nema að það var keyrt á Addie hundinn okkar. Það blæddi mikið úr löppini og hún gat ekki staðið í hana. Við settum á hana grysju og fórum svo til dýralæknis daginn eftir Þar fékk hún betri umbúðir, töflur og eithvað krem. Svo var hún bara send heim með okkur. En Magga fór með hana til annars dýralæknis og hann tók rönnken mynd og talaði um að hún þyrfti að fara í uppskurð og fleira. Úff, greyjið Addie! En hún verður í lagi, vona ég! 

Annars þá er ég orðin rosa dugleg að keyra í Boise, þetta er minna mál heldur en ég hélt! :)
Ég fann Best Buy og Mollið alveg sjálf, svo sótti ég Möggu á flugvöllin og ég rataði þangað líka.

Það styttist í það að ég verði ekki lengur barnið hennar mömmu! Muahaha, ég verð 18 eftir tvo daga og þá á mamma ekkert barn. Bara sjálfráða einstaklinga! Úff.. En ég vildi bara láta ykkur vita að ég tek á móti pökkum þótt ég sé eithverstaðar útí rassgati ;) haha.. 

Ætla að hafa þetta stutt núna, er á fullu að koma myndunum á netið! Blogga mjög fljótlega aftur, ég lofa!! 





-gnerakstar


Karen Guðmundsdóttir
5 athugasemdir

Allt í fári.

01. maí 2008 klukkan 08:02

Jæja ég á að vera löngu farinn að sofa, en datt í nokkrar fréttir og greinar á netinu um þetta brjálæði sem er búið að vera á klakanum seinustu daga. Mér skylst það á sögnum Möggu að pabbi væri alveg til í að komast í burtu frá landinu.
Það er einmitt hús til sölu á endanum á götunni minni, tók einmitt auglýsingu um húsið og ætla að senda það heim. Haha, segi svona!
Maður má ekki rétt svo skreppa frá landinu án þess að allt verði brjálað, Gasman alveg að fara á taugum og tekur djobbinu sínu rosalega alvarlega. Hann virðist allavegana vera eitt sá heitasta trendið á landinu nú á dögum. Ég hef heyrt um 4 lög sem hafa verið samin, búið að gera heimasíðu, nokkur myndbönd og hringitón sem er einmitt sá vinsælasti í dag. Vá hvað ég vildi að pabbi minn væri Gasman, þá hefði hann allavegana eithverja ástæðu til að flýja land og setjast að í ameríkuni! hahah..
 




Mér finnst þetta svo ólíkt Íslandi! Ég gat ekki annað en hlegið af þessu, sammt er Gasman mikið fyndnari.


Ég hef voða lítið að segja, langaði bara að skjóta einni færslu inn. Allt fer í háaloft þegar ég yfirgef landið, fólk klikkast og allt verður brjálað. Svo má ekki gleyma þegar ég yfirgaf landið sumarið 2004 þá kom hitabylgja.
Ég greinilega hef svona mikil áhrif á landið mitt!



-gnerak
Klukkan er: 2:20

Karen Guðmundsdóttir
Almennt | 4 athugasemdir

Seinustu dagar..

29. apríl 2008 klukkan 20:59
Mamma hringdi band brjáluð í mig um daginn og sagðist ætla að kaupa sér glænýtt hnífasett þegar hún kemur til bandaríkjana ef ég færi ekki að blogga almennilegt blogg.  Ruglið í henni móður minni, ég held að ég hafi aldrei á æfi minni skrifað jafn almennilegt blogg, með engum lygum  né neitt á æfi minni einsog þetta fyrir neðan.
Negrarnir mínir gáfu mér byssu um daginn.. Nei okei ég er hætt! Ég hef mikið meira að blogga um heldur en þetta rugl.

Ég sit hérna í sófanum að drukkna í svita og svimakasti.
Það var eithver söfnun í skólanum hans Brians og fólk var velkomið að kaupa sér að borða og chilla með krökkunum í eithvern tíma. Ég og Magga ákvöðum að styrkja skólann og ég var aðeins sein í að koma mér á staðinn því ég var að tala við pabba í símann. Svo þegar ég var komin útí bíl neitaði hann að starta sér, ég opnaði húddið og barði í rafmagnskassan og gerði allt til að reyna að koma honum í gang en ekkert virtist virka. (Virkaði sammt um daginn!)
Svo fór Karitas í fyrsta sinn á bílnum sínum í skólann þannig ég gat ekki tekið hennar bíl, típíst!
En ég ákvað bara að taka hjólið á þetta, fékk hjólið hans Brians lánað og brunaði niðrí skóla! Ég er ekki frá því að ég væri mikið fljótari að fara á hjólinu heldur en á trukknum. Því það var enginn fræðilegur möguleiki að finna stæði við skólann!
Ég mætti þarna eldmóð og rennandi blaut á rassinum eftir að hafa hjólað í poll (good job karen!).
Magga var mætt  á undan mér! Það gerist ekki oft, reyndar aldrei nema í dag því að trukkurinn ákvað að vera vondur við mig.
Ég er ekki frá því að ég hefði verið á undan henni ef það væri alltílagi með trukkinn. Haha..
Ég labbaði inn og vá, svimakastið og ógleðin sem ég fékk eftir að hafa hjólað svona hratt með tómann maga. Ég hélt virkilega að ég væri að fara að kasta upp. En svo þegar ég var búin að sækja mér að borða og setjast niður þá lagaðist þetta, þangað til að ég steig aftur á hjólið og hjólaði heim. Ég verð að fara að hreyfa mig meira, það er alveg á hreinu!

Í gær fékk Karitas ökuskírteinið sitt, hún fór í prófið á sunnudaginn og náði því léttilega. Ég er ekkert smá ánægð með hana, ég sótti hana úr skólanum og skutlaði henni á lögreglustöðina til að sækja skírteinið, vá hvað það tók langann tíma!
Ég beið fyrir utan í tæpa tvo klukkutíma, eða hún þurfti að fara heim til þess að sækja eithvað kort! Og í heildina tók þetta um tvo tíma að stússast í þessu. En það var svosem alltílagi mín vegna, ég stóð bara fyrir utann bílinn í góða veðrinu og svo kallaði eitthver gamall maður í mig og spjallaði við mig, hann var líka að bíða eftir eithverjum þarna inni. Hann sagðist ekki heyra neinn rosalegann hreim þegar ég talaði. Fannst það dáldið fyndið því hvert sem ég fer spyr fólk mig hvaðan ég er því að hreimurinn er svo mikill. Haha, svo var klukkan orðin 3 og loks kom Karitas út úr lögreglustöðinni. Ég rétti henni lyklana af bílnum og við keyrðum að stað. Við sóttum Brian úr skólanum og svo þurftum við að fara með George(hundinn) í sprautu og skila eithverjum krana. Svo þegar við komum heim fórum við tvær að elda takkos. Ekkert smá mikið að gera hjá okkur í gær.. haha!
Fínn dagur.

Helgin mín var annars fín, á Laugardaginn þá fórum ég og stelpurnar á Legacy, sem er eithverskonar garður með tjörn, körfuboltavelli, fótbolltavelli og borðum og eithverju rugli. Rosa snyrtilegt og fínt! Við poppuðum popp og fórum að gefa öndunum að borða. Fneh, hundleiðinlegar endur! Átu nokkur popp og fóru síðan, síðan hittum við stelpurnar Patrick og vini hans og fórum eithvað að hangsa með þeim. Ég panntaði síðan pizzur og bauð stelpunum í mat, svo fórum við heim til Patricks að boxa. Ég boxaði lítinn svertingjastrák í klessu! Ójá.. Haha! 
Sunnudagurinn var bara rólegur, ekkert séstakt sem ég gerði! Nema að ég fór í körfu með Patrick um kvöldið það er eina sem ég man eftir.. hahah

 Seinasta vika var ekkert mikið öðruvísi heldur en allar hinar, bakið mitt var í ruglinu þannig að ég gat ekkert gert neitt voða merkilegt. En núna er allt í lagi með það, jei! Loksins kemst ég úr rúminu án þess að finna til.

Ég, Magga, Brian og Tomas vinur hans fórum til Boise seinustu helgi, við fórum út að borða og svo í mollið! Möggu tókst að týna lykklunum sínum eithverstaðar og klukkan var að verða 9 og það var verið að loka mollinu. Við hlupum í allar búðirnar sem við fórum í og spurðum um lyklana. Svo leituðum við í langann tíma inní einni búðinni sem við vorum lengst í, en við fundum lyklana enganvegin! Síðan eftir eithverjar 40 mínútur fattaði ég að Magga hafði tekið uppúr veskinu sínu á einu afgreiðsluborðinu og við fórum þangað og lyklarnir okkar voru þar. Vá stress, allt að loka og við í boise með enga bíllykla að missa af myndinni okkar í bíó. Hahha, en við rétt náðum myndinni! Ég og Magga fórum á Forgetting Sarah Marshall og strákarnir fóru á Superhero Movie, sem betur fer komu þeir ekki með okkur á Forgetting Sarah, haha það yrði skrautlegt!
Hlægileg mynd, mæli alveg með henni ef þú ert í hlægi stuði!

Takk mamma fyrir að senda mér kød og grillkrydderi.. Vá hvað ég var sátt þegar ég sá það!
Og endalausar þakkir fyrir að senda mér diskinn! Fólk, ég mæli svo brjálæðislega klikkaðslega með hljómsveitinni We Made God, endilega tékkið á henni www.myspace.com/wemadegod ein af bestu Íslensku hljómsveitunum sem eru starfandi í dag.
Ég hef ekki tölu á því hvað ég hef hlustað á diskinn oft í dag, allavegana meira en 5 sinnum!
Svo vil ég þakka Arnóri kærlega fyrir að geyma fyrir mig eitt stikki og koma því til skila til móður minnar, ég er ekkert smá ánægð! ^^ Ást á ykkur..




Held að þetta sé orðið nóg í bili, hef voða lítið að segja meira! Þannig ég blogga bara seinna.
Ást og friður.






-gnerak
Klukkan er: 2:59

Karen Guðmundsdóttir
Almennt | 2 athugasemdir

Nýtt og betra líf!

25. apríl 2008 klukkan 00:10

Jæja, mamma var orðin brjáluð útaf það vanntaði annað blogg!
Ég þorði ekki annað en að drífa mig í því, því hún á það til að berja mann og henda hnífum útum allt ef maður gegnir henni ekki strax! Ég gæti nú alveg trúað því að hún myndi fljúga hingað til bandaríkjana með hnífasettið sitt og krepta hnefa!
Ég ætti sammt ekkert að vera hrædd lengur, ég lifi enn! Sammt með eithver sár og ör. Þetta var orðið  daglegt brauð þegar ég bjó á Íslandi.
Ábyggilega þess vegna að hún sendi mig hingað út, hún myndi sennilega ekki koma ef ég myndi ekki blogga fljótlega. Ég held að hún hati mig!
Sendir mig til eitthverja konu sem er ekkert skild mér lengst, lengst í burtu.
Þetta er pottþétt hatur!
Ef þetta átti að vera eithvert ógurleg hefnd hjá henni móður minni þá virkaði það ekki vel. Því mér líður bara anskoti vel hérna!
Það eru að minnsta kosti ekki blóðslettur á hverjum einasta vegg, hnífar í hverju herbergi, AK47 inní stofu, pistol inní hjónaherbergi og í eldhúsinu, 5 lásar á hverri útihurð og keðjusög í sambandi inní bílskúr!

Ég gekk til liðs við svertingja hóp sem kalla sig Blood! Þeir klæðast yfirleitt rauðum fötum, Crips eru helstu óvinir okkar! Þeir klæðast bláum fatnaði. Svo að ég gæti verið Blood meðlimur þurfti ég að lofa því að hætta aldrei í Blood annars  væri ég drepin! Og svo þurfti ég að finna Crips meðlim og ráðast á hann. Ætla ekki að fara nánar í það, en ég stóðst prófið! Svo ætla þessir nýju vinir mínir að redda mér byssu bráðlega. Vá hvað ég hlakka til! =D



Annars er ekkert meira að frétta, ég er bara alla daga að hangsa með nýju vinum mínum. Ég finn ekki fyrir neinum sökknuði. Ísland og allt sem er þar er rusl, Ameríka rúllar!!


Karen Guðmundsdóttir
Almennt | 3 athugasemdir

Langt síðan seinast.

15. apríl 2008 klukkan 19:02
Jáh, löngu kominn tími á nýtt blogg. Ég hef sammt ekkert svo mikið að segja held ég! Dagarnir eru flest allir eins, vakna um 7-9 leytið, fer í sturtu, að borða, hangsa í tölvuni og sæki krakkana síðan um 3 leytið í skólann.

Við fórum í útskriftarveislu hjá Melissu, sem er eldri stelpan sem býr við hliðiná mér! Ég hjálpaði Melanie (systur hennar) að gera stórt plaggat sem stóð "Congratz Melissa" og svo fór ég með þeim að skreita salinn. Þau voru ekkert smá þakklát fyrir hjálpina mína, þau voru í svo miklu stressi greyin.Hehe!
Svo seinna um kvöldið mættum við í veisluna, Magga sendi mig og Brian á undan því hún var ekki tilbúin. Svo mætti hún tveim tímum of seinnt alveg merkilegt hvað henni tekst alltaf að vera sein! Heheh..
Það var dáldið skrítið að vera eithvað ein þarna, ég þekkti ekki einusinni útskriftar nemann! Ég sat bara í sófanum og beið eftir Möggu. En svo var ég dregin uppúr sófanum og eithver kona byrjaði að kynna mér fyrir öllum! Það var dáldið fyndið.
Svo lennti ég á rosalegu spjalli við gamlann mann sem hafði verið í flughernum. Hann talaði og talaði, dáldið gaman að hlusta á kallinn. Hann sagði mér að hann hafi lennt í Reykjavík árið 1952. En ég leiðrétti hann og sagði að hann hafi í raun og veru lennt í heima bæ mínum, Keflavík. Og sá gamli var ekkert smá ánægður með að ég hafi leiðrétt hann og byrjaði að segja öllum frá því.
Konurnar í kringum mig byrjuðu að vorkenna mér þegar hann fór að segja mér þessa sögu. Þær hafa greynilega heyrt söguna oftar en einusinni! En mér fannst þetta rosalega áhugavert og fyndið að sjá gamlakallinn svona ánægðan með að ég leiðrétti hann.
Eftir veisluna fórum ég, Karitas og Brian í bíó á Drillbit Taylor! Rosa skemmtileg mynd..

Seinasta vika var bara venjuleg, chilluð og fín! Ég og Patrick erum búin að vera að chilla dáldið saman. Gaman að hann vill kynnast mér. Ég er náttúrulega enþá dáldið feimin því ég er ekki alveg að fíla enskuna sem ég tala. Haha, en já Patrick vill alveg kynna mér fyrir öllum. Rosa gaman..
Ég, Pat og Melissa fórum og horfðum á Junior High krakkana keppa í grindarhlaupi! Rosa drama þar á ferð, allir grátandi! Hehe..

Á föstudaginn eldaði ég kvöldmatinn, vá! Ég vissi ekki að ég væri svona góður kokkur. Ég eldaði gamaldags kjúkling. Við ætluðum svo að rífa hann niður og búa til chilli rétt. En ég týmdi því ekki eftir að hafa eldað hann. Hann leit svo vel út þannig við pönntuðum bara franskar og gerðum brúna sósu.
Svo goooott!!
Ég er búin að fatta það hvað mér finnst ýkt gaman að stússast í eldhúsinu, ég ætla að halda þessu áfram. Svo verð ég svaka kokkur þegar ég kem heim! hahah..

Svo á föstudagskvöldið hringdi Pat í mig og bað mig um að koma út og já ég fór út og þar voru nokkrir krakkar og við fórum öll á trampólínið hennar Melanie. Shit hvað það er ekki töff að vera svona margir á einu trampólíni. Við vorum 5 eða 6 og öll að hoppa, svo hoppaði ég og tvær aðrar stelpur á rassinn og ég var í miðjuni á trampólíninu og ég lennti á jörðinni. Það teygðist svo langt niður að ég skall í jörðina! Vá hvað þetta var ógéðslega vonnt fyrir bakið á mér. Það tók mig dáldinn tíma að geta byrjað að hoppa aftur og svo seinna gerðist þetta aftur. Og þá fór bakið mitt í bókstaflegt rugl. Vá! Ég finn enþá til í bakinu.. Ég gat ekki einusinni farið í körfu seinna um kvöldið það var svo vonnt að lifta höndunum.

Á laugardaginn var ég ekkert smá dugleg. Veðrið var endalaust gott og ég var úti að moldvarpast í beðunum hennar Möggu. Það tók alveg nokkra klukkutíma og síðan þreif ég bílinn hennar og svo þreif ég trukkinn minn. Ég fékk smá lit eftir að hafa verið úti. Vá hvað ég var þreytt eftir þennan dag og svaf alveg til hádegis daginn eftir! Vá það hef ég ekki gert lengi.
Svo daginn eftir hjálpaði ég Möggu að taka aðeins til í bílskúrnum og svo tók ég niður seríurnar á húsinu sem var búin að vera þar síðan á jólunum. Magga hafði engann tíma til þess að taka þær niður. Alltaf svo mikið að gera hjá henni.

Æji, mér finnst svo æðislegt að geta hjálpað henni! Það er svo margt sem þarf að gera og hún hefur engann tíma fyrir það.

Já, þetta er eginlega það sem ég er búin að vera að bralla seinustu daga! Hef voða lítið að segja meira. Magga ætlar að stofna reikning fyrir mig í dag til þess að setja dollarana mína inná. Þannig ég get farið að kaupa mér tölvu, hlakka ekkert smá mikið til =)





Takk fyrir mig.
Blogga meira seinna.



-gnerak
Klukkan er: 13:02

Karen Guðmundsdóttir
Almennt | 12 athugasemdir

1.Apríl

01. apríl 2008 klukkan 17:57
Jæja, home sweet home!
Loks er ég komin heim og get farið að byrja aftur að vakna snemma og hreyfa mig, haha! Ég var alveg búin að snúa sólarhringnum við, var ekki sátt með það!
Það var svo æðislegt að hitta loksins Högna og Audrey, þau eru alltaf jafn sæt og æðisleg. Leiðinlegt að þau eiga heima svona langt í burtu, væri til í að geta séð þau allavegana aðra hverja helgi.
En ég rata til þeirra, kanski að ég taki bara rúnnt alltaf aðra hverja helgi. Haha plat! Það yrði kanski dáldið þreytandi til lengdar.
Mér fannst nú alveg nóg að keyra þetta eina helgi og vera þar í viku og fara svo aftur heim. Greyjið Magga að hafa þurfa að keyra framm og til baka tvær helgar í röð. Það er dáldið mikið finnst mér. En við skiptumst á að keyra á leiðinni heim :)
Ég og Magga áttum gott samtal, við spjölluðum alla leiðina um daginn og veginn. Rosa næs, finnst svo æðislegt hvað við náum vel saman.

Ég er búin að vera að reyna að setja myndir á netið en það virðist engin síða vera nógu góð fyrir mig! Ég er ekki að nenna að setja eina mynd, bíða síðan í 5 mínútur svo ég geti sett næstu mynd inn. Það tekur endalausann tíma!
Ég ætla að halda áfram að leita af myndasíðu sem er létt að uploada myndum á! Þannig bara.. Stay Tuned! Haha..

Ég er að reyna að halda mér í fínu formi. Það gengur eithvað illa þessa dagana, er eithvað svo löt! Get ekki beðið eftir því að fá Herbalife dótið frá mömmu, vona að það fari að koma! Ég verð svo að fara að æfa þolið, það er ekkert smá lítið hjá mér núna. Ég fór út að skokka með Addie í morgun og vá hvað ég er með lítið þol, ég verð orðin flott í sumar! Ohyeah.. Stefni á það.

Ég er ekki sátt með veðrið þessa dagana, ýkt mikið gluggaveður! Mig kítlar í puttana þegar ég sé sólina og langar bara út í sólbað eða dunda mér eithvað úti, en það er bara skíta kluldi! Brr.. hlakka til þegar það fer að hitna meira! Stutt í það, jei! =D

Í dag er 1.apríl, gabbidagurinn mikli!
Fólk er ekki alveg að fatta þennan dag, halda að það megi bara ljúga endalaust. Það er byrjað að fara dáldið í taugarnar á mér. Séstaklega þegar fólk lýgur að annaðhvort foreldrið þeirra var að deyja eða að það sé ólétt eða eithvað þannig. Það er ekki aprílgabb.
Þegar ég var yngri laug mamma að mér að það væri verið að gefa páskaegg í kaupfélaginu. Já, páskarnir voru búnir og búðin var að hreinsa út páskaeggin.
Ég og eithverjir krakkar hlupum eins hratt og við gátum svo við myndum ekki missa af páskaeggjunum. Loks þegar við vorum komin í búðina þá var ekkert verið að gefa páskaeggin. Svo þegar við komum aftur heim þá stóð miði á hurðinni að þetta hafi verið aprílgabb. Við vorum enganvegin sátt! haha
Þetta er alvöru aprílgabb, að ljúga að fólki svo það fari eithvert.
Mér finnst þessi dagur orðinn að algjöru rugli að ég nenni ekki að taka þátt í honum. Líka það að ég er ekkert rosalega góð að láta fólk trúa mér. Séstaklega ekki face to face! haha

Fyrir akkurat tveimur árum yfirgaf Brian "Krash" Krajniak okkur hérna á jörðu.
Hann var eitt af þeim æðislegustu mönnum sem ég hef nokkurntíman kynnst og mun kynnast. Hann tók við okkur fjölskylduni með gleði og mikilli ást. Ég vildi óska þess að ég hafi kynnst honum betur og hefði getað eytt meiri tíma með honum. En sá tími sem við áttum er ógleymanlegur. Brian var alltaf svo góður og duglegur, ég hef heyrt svo margar skemmtilegar sögur af honum. Það væri svo æðislegt ef hann væri hérna enn með okkur.
Ég mun aldrei gleyma þér elsku Krash, ég er svo þakklát að hafa kynnst þér. Einn daginn munum við hittast á ný, ég lofa!
Kvíldu í friði, ég elska þig!

Krash


-gnerak
klukkan er: 11:57


Karen Guðmundsdóttir
6 athugasemdir

Spring Break.

30. mars 2008 klukkan 07:41
Jæja, þá er ég búin að vera í heimsókn hjá Högna bróður í eina viku.
Þessi vika var ekkert smá fín, ég og Brian vorum ein heima alla daga þangað til að Högni kom heim úr vinnuni sem var um 5 til 6 leytið.
Um daginn vorum við í Halo3 í Xbox í 10 klukkutíma, fórum síðan að sofa og daginn eftir kláruðum við leikinn. Haha, alveg merkilegt hvað maður dettur inní suma leiki og getur ekki hætt fyrr en maður er búinn að klára. Ávanabindandi rugl!
Brian er búin að vera mest allann tíman í Xbox og ég í PC tölvuni eða horfa á sjónvarpið. Veðrið er búið að vera svo leiðinlegt að við höfum ekki nennt út!
Seinustu daga hefur snjóað og skíta kuldi. Ég sem hélt að ég væri að fara út í hitann, fneh.. mér skjátlaðist greinilega!
Nema um daginn, þá var gott veður og ég tók Max og Nyhu út að labba. Efast um að eithver myndi þora að bögga mig á meðan ég væri með þau nálægt mér! Haha, ekki það að þau séu eithvað grimm. Þau eru bara HUGE!
Ef ég myndi vera ein á labbinu og myndi sjá Max lausann þá myndi ég án djóks hlaupa í burtu grátandi. Hann lýtur út einsog björn! En hann er rosa góður og ljúfur. Annað en Nyha, hún er Bitch. Haha!
Ég er loks búin að kaupa mér myndavél þannig það fara bráðum að koma inn myndir, vona bara að ég verði dugleg með myndavélina! Verð eginleg að vera það, þið verðið nú að fá að sjá hvernig ég lifi. Ekki satt?
Ég og bræður mínir fórum í Bowling í gær, vá ég var að rústa þeim í fyrsta leiknum en svo í endann náði Högni mér og rústaði okkur Brian. Ég var ekki sátt!
Svo var seinni leikurinn hörmulegur, Högni náði þrem fellum í röð og rústaði okkur aftur. Eftir keiluna fórum við í AirHockey og aftur var það sama sagan, sama hvað, þá náði Högni alltaf að vinna. Ég var sammt helvíti góð, þó ég segi sjálf frá ;) haha.
Svo var dagurinn í dag bara kósý og fínn, strákarnir spiluðu Xbox og ég hékk í Pc tölvuni.. Fengum okkur ís og svo um kvöldið skelltum við okkur ásamt Audrey í Fun Center. Ég og strákarnir fórum í GoKart og síðan var farið inn og spilað eithverja leiki.
Rosa gaman!
Svo var Magga komin þegar við komum heim, ég var byrjuð að sakna hennar! Heheh
Á morgun ætlum við að reyna að vakna snemma til að gera eithvað skemmtilegt með Högna og Audrey áður en við förum heim til Mountain Home. Og ég ætla að fá að versla smá! =) Vona að þessi dollari fari að minnka, er farin að vannta föt og ég, nirfillinn sjálfur er ekki að tíma að kaupa mér föt núna. Haha!
Ég er ekki búin að versla mikið síðan ég kom hingað, flest allir sögðu að ég myndi eyða peningnum á fyrstu vikunni. En eginlega eina sem ég er búin að versla mér eru nauðsynjavörur og hjólabrettadót.. Það er eginlega nauðsynjavörur líka sko. Já og svo myndavél og geisladiska, thats it!

Á leiðinni hingað til Oregon þá var ég með iPodinn minn á shuffle og þá kom lagið Story Of A Star með Ultra Mega Tekknóbandinu Stefán. Ég gat ekki hætt að brosa, þetta lag minnti mig svo mikið á góðu tímana með Hinna og Ásgeiri. Og þá byrjaði ég að hugsa um seinustu dagana á Íslandi. Vá hvað þið getið ekki ímyndað ykkur hvað ég var ýkt glöð og ánægð með fólkið sem kom heim til mín og kvöddu mig. Þessi stund var og er mér mikils virði, vildi bara þakka ykkur sem komu endalaust mikið fyrir! Þið eigið stórann hlut af hjarta mínu :)

Þessi vika er búin að rugla alveg sólahringnum hjá mér, ég er byrjuð að vakna klukkan ellefu eða hálf tólf á daginn. Ég er ekki að fíla það, ég sem er vön að vakna klukkan sjö eða átta. En nú fer þetta að breytast, páskafríið er á enda og skólinn fer að byrja. Þá vonandi lagast sólarhringurinn.
Það er ekkert smá þæginlegt að vakna svona snemma, dagurinn ýkt langur og margt hægt að gera. Ætla að reyna að halda þessu áfram! =D
En jæja, ég ætla að vakna snemma á morgun! Þannig ég ætla að fara að gera mig til fyrir svefninn. Ég hendi inn myndum þegar ég kem heim til Mountain Home!
Vonandi hafið þið það bara gott þarna á Íslandi! (Og Bibbi í Danmörku).
Takk fyrir mig!

Ég, Max og Nyha!

-gnerak
Klukkan er: 12:41


Karen Guðmundsdóttir
Almennt | 3 athugasemdir

Páskar

24. mars 2008 klukkan 17:35
Jæja, það er byrjað að reka á eftir mér með nýtt blogg og ég verð víst að gegna. Ég vil byrja á því að óska öllum gleðilega páska og vona að allir höfðu það gott í páskafríinu.
Páskahelgin mín var svosem ágæt, laugardagurinn fór í það að keyra til Bend í Oregon, sem sagt heim til Högna bróðurs. Það var ekkert smá gaman að hitta hann loksins. En sú keyrsla tók um það bil 5 og hálfann tíma án stoppana.
En við græddum einn tíma, klukkan í Oregon er einum tíma á eftir klukkunni í Idaho!
Semsagt, nú munar 7 klukkutímum milli mín og ykkar sem eru á Íslandi.
Um kvöldið fórum við familían á Outback Stakehouse, mmmh ekkert smá góðar steikur þarna og eftir það fórum við bara heim að horfa á sjónvarpið.
Daginn eftir semsagt á páska sunnudaginn, þá vöknuðum við snemma og fórum út að borða á geeeðveikum morgunverðar stað!
Ég fékk mér American' Pancakes og beikon, yummy! hah Allur maturinn þarna var ekkert smá girnilegur og lyktin var svo góð!
Eftir það fórum við heim og Magga og Karitas voru að gera sig tilbúnar að leggja af stað aftur heim til Idaho, skemmtileg páskahelgi hjá þeim! Keyra 5 og hálfann tíma tvo daga í röð! jei
Sistkynin Ég, Brian og Högni fórum svo að skreita egg.. haha þau voru ekkert smá skrautleg hjá okkur! Síðan var bara chillað og horft á mynd um kvöldið.
Jáh, thats it.
Hef voða lítið meira að segja, nema til hamingju með afmælið mamma mín!
Vona að þú hafir verið sátt með kortið sem ég sendi þér, skal gefa þér pakka þegar þú kemur að heimsækja mig =D haha ..
Ég ætla að reyna að kaupa mér myndavél í dag, biðja Högna um að gefa mér góð ráð þegar hann er búinn að vinna. Þannig ég fer að setja inn myndir eithverstaðar á netið bráðum.

Kem með aðra færslu bráðum. Pís.


-gnerak
klukkan er: 10:34

Karen Guðmundsdóttir
Almennt | 3 athugasemdir

Pínu smá.

18. mars 2008 klukkan 16:46


Ég hef tekið eftir því að kanar eru alltaf að flýta sér, búðirnar eru stút fullar af máltíðum sem tekur um 10 mínútur að elda eða minna! Ég sammt kvarta ekki, þetta er akkurat maturinn fyrir mig. Ég hef aldrei nennt að búa mér til að borða ég lét mömmu dekra við mig. En núna er enginn mamma til að gera það þannig ég þarf að byrja að hugsa um mig sjálfa! Þangað til hún kemur í sumar.. haha djók!

Svo er líka allt stórt og mikið hérna. Stórar búðir, stórar ruslatunnur, stórar geymslur, mikið af nammi, mikið af mat, stórt fólk! You name  it. Ameríka er svo allt öðruvísi en Ísland. 

Nú er ég loks skriðin útúr egginu, ég er byrjuð að rata hérna í Mountain Home. Ég er ekki jafn einangruð og ég var fyrstu dagana! Haha, ég tók trukkinn í geggn, tók húsið af honum og gerði hann ýkt fínann! Algjör snilld að ég sé með bíl útaf fyrir mig hérna.

Ég hef voða lítið að segja meira, bara að lífið er æðislegt!

En já, nú ætla ég að fara að gera mér eithvað að borða! Er búin að sitja hérna í 3 tíma að drepast úr hungri en ekki nennt að standa upp til þess fá mér eithvað í svanginn!
Ótrúlegt en satt, þá byrjaði ég á þessu bloggi klukkan hálf 9 og núna er hún korter í 11! Haha, er ekki að nenna þessu núna. Blogga seinna þegar ég hef eithvað skemmtilegt að segja ;D




-gnerak


Karen Guðmundsdóttir
3 athugasemdir